Búið er að opna orlofsvef félagsins fyrir almennar bókanir í tímabil í sumarhúsum félagsins sem eru enn laus eftir úthlutun. Búið er að bjóða öllum á biðlista - þ.e. þeim sem sóttu um orlofshús í sumar en fengu ekki - að breyta umsóknum sínum að þeim tímabilum sem enn voru laus og nýttu fjölmargir sér það. Enn eru samt eftir nokkur tímabil sem eru laus og geta nú allir félagsmenn bókað beint án þess að það fari í gegnum skrifstofu félagsins.
Bókunarvefurinn er á "mínum síðum" í hlekknum hér að ofan og innskráning er með rafrænum skilríkjum eða með lykilorði.
AFL Starfsgreinafélag óskar að ráða starfsmann til afleysinga á skrifstofu félagsins á Höfn í sumar. Starfið felst í almennum störfum hjá stéttarfélagi, s.s afgreiðslu, símsvörun, tölvuvinnslu, eftirliti með orlofshúsum, vinnustaðaheimsóknum og fleiru.
Ráðning er til 15. september 2024 - æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Viðkomandi þarf að hafa hæfilega tölvukunnáttu, geta unnið sjálfstætt og hafa góða framkomu. Vinsamlega sendið umsókn á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. merkt ”Hornafjörður” fyrir 15. apríl n.k.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjördís Þóra, 4700 301, og This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.